Description
ORIENT garðkúlurnar eru í tveimur hlutum, báðum einingunum er hægt að snúa í heilan hring… rúmlega 1/3 hluti kúlunnar opnast.
Hægt er að láta op kúlunnar fylgja sólinn allan daginn eða snúa kúlunni upp í vindinn til að fá skjól.
Enginn vafi er á því að heitir pottar sem dæmi, eru skemmtilegastir utan dyra hvort sem er á sumrin eða á veturna, en það er augljós kostur að geta fengið skjól þegar það hentar.
IPC hefur verið í fararbroddi síðust árin í framleiðslu sundlaugaskála, garðkúla og skála yfir verandir. Þeir hafa verið fyrstir með nýjungar eins og garðkúlurnar á brautum, sundlaugaskála með kúlulaga enda, lágar flatar gólfbrautir og álprófila með viðaráferð svo eitthvað sé nefnt. Framleiðsla IPC er boðin í 30 löndum Evrópu ásamt Asíu og Ameríku. Nútímaleg hönnun og tölvustýrð framleiðsla gerir IPC að leiðandi framleiðanda á sínu sviði. Garðkúlurnar og skálarnir eru sérsmíðaðir eftir málum.